
Í tilefni af fannhvítri jörð og frosti í lofti hefur fréttaritari Háiskáa ákveðið að verða við fjölda áskorana og stofna hér til viðtalshorns við meðlimi Endurosamfélagsins í Vestmannaeyjum.
Sá sem ríður á vaðið er enginn annar en Steini Spítt sonur Sigga Ella frá Varmadal.
Sæll Spítti segðu lesendum eitthvað frá þér.
Já hvar skal byrja.. ég er einn af þessum alhörðustu í bransanum þó að ég segi sjálfur frá, hef verið á hjóli frá blautu barnsbeini eiginlega, fyrst á Scauff 3ja gírahjóli uppí stærstu mótorhjól sem menn hafa smíðað.
Já gaman að heyra það Spítti en getur þú talið upp hjólin í réttri tímaröð svona til að lesendur geti glöggvað sig aðeins betur á þér.
Eins og ég sagði áðan þá var Scauff hjólið það fyrsta í röðinni og svo var að mig minnir kom DBS Road-Killer hjólið en það hjól hef ég átt allatíð síðan þó að önnur hafi komið og farið eins og gengur þá var Killerinn alltaf í mestu uppáhaldi.
Já já frábært... en segðu okkur nú frá mótorhjólunum.
...uuu fyrsta crosshjólið sem ég átti var Yamaha YZ 250 frá árinu 1981 og svo átti ég YZ 250 83 módel sem var mitt fyrsta vatnskælda hjól sem að var allgör bylting frá loftkældu hjólunum því að nú var hægt að smygla vodka í vatnskassanum heim af hrauninu ef að maður kom við á Strandveginum og gat dobblað gömlu kallana að kaupa fyrir sig pela.
Þannig að áfengisvandræðin byrjuðu fljótt Spítti ?
Nei nei aldrei veið neitt vandamál hjá mér.
En ef við höldum hjólaupptalningunni áfram þá eignaðist ég eftir Yamaha vandræðin mitt fyrsta alvöru hjól sem að var Honda CR 500 frá árinu 1988.(slef slef slef..innskot blaðamanns)
Síðan tók við langt frí frá hjólum ef undanskilinn er Killerinn sem að ég sagði frá áðan.
það var svo fyrir 4 árum að ég eignaðist hjólið sem ég á í dag en það er Enduro búðingurinn KTM EXC 450 frá árinu 2005.
Segðu mér Spítti ...kom aldrei til að hætta að hjóla og hella sér bara beint í bokkunna?
Nei nei eins og ég sagði áðan þá hefu ekki verið vandamál að sameina þetta tvennt.
Ertu að gráta Spítti minn?
Ha nei ég fékk bara ryk í augað.
Er eitthvað sem að stendur uppúr frá fyrstu hjólaárunum?
Já þetta er góð spurning hjá þér, því að það sem hefur staðið uppúr er náttúrulega allir félagarnir sem ég hef eignast í gegnum tíðina, en frá fyrstu árunum er minningin um tvígengislyktina hvað sterkust því að þá blönduðu menn sterkra en í dag.
Mig minnir að á Yammana góðu var einn lítri af BP tvígengisolíu í 25 lítra af bensíni en í dag blandar Binni td, einn á móti 50 lítrum af bensíni.
Þannig að þú vilt sterkari Gin blöndu en flest allir aðrir menn?
Ha Gin??
Já Gin!!!
Nú skil ég ekki hvað þú átt við með að blanda Gini í þetta ég var að tala um bensínblöndur í gamla daga.
Skál.
Ha??
Eru eitthverjir viðburðir framundan hjá þér Spítti?
Já við félagarnir erum að plana árshátíð Háaskála sem verður nú á milli jólahátíðanna (á ónefndum stað sem verður ekki gefin upp hér og nú) ég er á fullu að undirbúa Power-Point sýningu frá Böddatúrnum síðasta sumar sem við ætlum að sína á árshátíðinni og svo bara að hjóla sem minnst svo að dekkinn endist nú eitthvað fram á sumarið.
Talandi um dekk Spítti, hvaða dekk eru best?
Það er án efa Trellinn Army Special, hreint út sagt mögnuð dekk sem að endast og endast í geimslunni heima.
eitthvað að lokum Spítti?
Já ég vil þakka Lilju konunni minni fyrir að leyfa mér að kaupa hjólið sem ég á í dag og fyrir að leyfa mér að hanga á Road-Killernum öll þessi ár, þó að oft hafi reynt á að hafa það uppi í rúmi á milli okkar.
Það er nú fátt meira kynæsandi en eiginkona öll útötuð í keðjufeiti Spítti minn.
Já þar erum við sammála og takk fyrir mig.
Fréttaritari þakkar Spítta fyrir viðtalið og birtir hér mynd sem var tekin í miðju viðtali.
Góðar stundir.